Jónsbók

Notendaskilmálar Jónsbókar

Raxiom ehf., kt. 570724-1180, Hlíðarvegi 16, 200 Kópavogi („félagið“), er eigandi og rekstraraðili Jónsbókar, lögfræðilegs rannsóknar- og ritunaraðstoðarmanns fyrir lögmannsstofur, lögfræðideildir og opinbera aðila („Jónsbók“).

Hér á eftir fara skilmálar sem gilda um notkun og aðgang að Jónsbók. Um þjónustu félagsins gilda einnig persónuverndarstefna, áskriftarskilmálar og, eftir því sem við á, vinnslusamningur áskrifanda.

Gildissvið og gildistaka

Skilmálar þessir eru sérstakir notendaskilmálar á milli félagsins, áskrifenda og notenda, og veitir félagið áskrifendum og notendum takmarkað leyfi til notkunar á Jónsbók í samræmi við þá skilmála og skilyrði sem hér eru sett fram.

Skilmálar þessir taka gildi gagnvart áskrifanda og notanda þegar viðkomandi samþykkir skilmála á vef félagsins eða þegar aðili notar Jónsbók í fyrsta sinn, sá atburður sem fyrr kemur.

Skilgreiningar

Áskrifendur: Með hugtakinu er átt við aðila í áskriftarþjónustu Jónsbókar.

Notandi: Með hugtakinu notandi er átt við hvern þann aðila sem notar Jónsbók.

Skilmálar: Með hugtakinu skilmálar er átt við skilmála þessa.

Efni viðskiptavina og notkun líkana

Efni viðskiptavina er áfram eign þess áskrifanda eða notanda sem sendi það inn, með fyrirvara um innri reglur áskrifanda og gildandi lög.

Efni viðskiptavina er unnið til að veita Jónsbók og er ekki notað til að þjálfa mállíkön. Ef notandi sendir sérstaklega inn endurgjöf getur félagið yfirfarið viðkomandi samskipti vegna aðstoðar, villuleitar eða vöruumbóta.

Öryggi í Jónsbók

Notandi ber ábyrgð á notkun og öryggi aðgangs síns að Jónsbók, að halda auðkennum trúnaðarmáli og að hætta notkun og óska eftir nýjum auðkennum telji hann að aðgangur hafi verið stofnaður í hættu. Notanda er óheimilt að deila aðgangi sínum með öðrum. Ef áskrifandi notar SSO, OIDC, SAML, EASIE eða MFA ber notanda að hlíta þeim stjórntækjum.

Það er með öllu óheimilt að reyna á nokkurn hátt að sækja, birta eða greina (e. reverse engineer) á annan hátt undirliggjandi forritskóða (e. source code) eða fyrirmæli mállíkana (e. prompts) út frá þeim hugbúnaði sem er notaður á Jónsbók. Ef notandi fær af öðrum ástæðum aðgang að undirliggjandi forritunarkóða, s.s. vegna bilunar þá ber honum að tilkynna slíkt til félagsins.

Það er með öllu óheimilt að nota neins konar sjálfvirkan hugbúnað, forrit eða annars konar sjálfvirkar aðferðir til að fá aðgang að, nota, afrita eða fylgjast með nokkrum hluta af vefsvæði Jónsbókar nema með skriflegu leyfi félagsins.

Það er með öllu óheimilt að trufla notkun annarra notenda, fá aðgang að efni annars áskrifanda, eyða eða breyta efni sem aðrir hafa sent inn, valda óeðlilega miklu álagi á þjónustuna eða undirliggjandi innviði hennar eða trufla með öðrum hætti eðlilegan aðgang að þjónustunni.

Rafrænar tilkynningar

Rafrænar tilkynningar frá Jónsbók verða sendar á skráð netfang notanda hverju sinni.

Með því að skrá sig fyrir aðgangi að Jónsbók, samþykkir notandi að félagið megi, þegar nauðsyn krefur, senda notanda tilkynningar á netfang það sem skráð er í tengslum við aðgang notanda að Jónsbók.

Brot á skilmálum

Verði notendur uppvísir að brotum á þessum skilmálum, misnotkun á Jónsbók eða hegða sér á þann hátt að augljóst er að viðkomandi getur ekki eða ætlar ekki að uppfylla ákvæði þessa skilmála er félaginu hvenær sem er, og án fyrirvara, heimilt að loka aðgangi slíks aðila að Jónsbók. Í slíku tilfelli verður áskrifanda og notanda send tilkynning þess efnis á skráð netfang áskrifanda. Riftun á þessum grundvelli undanskilur áskrifendur ekki frá greiðslu útistandandi gjalda.

Breytingar á skilmálum

Félagið áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum og munu breytingar verða tilkynntar áskrifendum við næstu innskráningu eftir að breytingarnar taka gildi.

Lög og varnarþing

Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.

Öll ágreiningsmál á grundvelli eða í tengslum við þessa notendaskilmála skulu eingöngu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Síðast breytt 6. maí 2026