Stillingar á vafrakökum

Veldu hvort þú leyfir viðbótartölfræði og markaðssetningu. Grunnmælingar án tölfræðivafrakaka eru áfram virkar. Þú getur breytt þessu vali hvenær sem er í vafrakökustillingum.

Nauðsynlegar

Alltaf virkar

Styðja við öryggi, innskráningu og vistun á vafrakökuvali þínu.

Leyfðu PostHog og HubSpot að nota tölfræðivafrakökur og geymslu í vafranum til að þekkja gesti sem koma aftur og hjálpa okkur að skilja heimsóknir og fyrirspurnir betur.

Leyfðu Google, Meta og LinkedIn að mæla árangur herferða og birta auglýsingar sem eiga við þig. Ef tölfræði er einnig virk getur HubSpot notað auglýsingaeiginleika. Upplýsingum um fyrirspurnir og kaup kann að vera deilt með auglýsingavettvöngum.

Þetta val stýrir ekki notkunar- og villuskráningu í innskráðri þjónustu eða skráningu fyrirspurna og reikningsfærslna á miðlara. Nánari upplýsingar eru í persónuverndarstefnu okkar. Persónuverndarstefna

Jónsbók

Lögfræðingur - Viðskiptaþróun & Sala

Hefur þú áhuga á að sameina lögfræði og viðskiptaþróun? Við tökum við kynningum allt árið, þótt við séum ekki í virkri leit að starfsfólki.

Viðskiptaþróun og lagatækni hjá Jónsbók

Opnar umsóknir

Leiddu vöxt í lagalegri gervigreind

Við tengjum saman lögfræðilega þekkingu, innsýn í þarfir viðskiptavina og sölu til að hjálpa lögfræðiteymum að nýta Jónsbók. Við erum ekki í virkri leit að starfsfólki í tiltekið starf, en tökum fagnandi á móti kynningum frá fólki sem gæti fallið vel að teyminu. Segðu okkur frá bakgrunni þínum og áhugasviðum; við gætum haft samband ef viðeigandi tækifæri opnast.

Verkefnin okkar

Leiða sölu og viðskiptaþróun frá tækifæri til samnings.
Kynna vöruna og útskýra virði hennar fyrir lögfræðingum og fyrirtækjum.
Byggja og rækta sambönd við lykilaðila á markaði.
Þróa go-to-market: verðlagningu, skilaboð, söluefni og ferla.
Koma endurgjöf viðskiptavina inn í vöruþróun.
Styðja við onboarding og fyrstu skref viðskiptavina.
Taka þátt í uppbyggingu nýrra markaða, með ferðalögum eftir þörfum.

Þú gætir passað ef þú

Ert lögmaður eða með sterka þekkingu á lögfræðilegum vinnubrögðum.
Hefur reynslu af sölu, viðskiptaþróun eða ráðgjöf (B2B kostur).
Hefur áhuga á tæknivörum og nýtur þess að læra nýja hluti.
Þrífst í óvissu og leysir verkefni þar sem lausnin er ekki augljós.
Tekur ábyrgð, sýnir frumkvæði og ert mannblendin/n.
Getur miðlað flóknum málum á skýran og skiljanlegan hátt.

Kostir

Reynsla af lögmanns- eða lögfræðistörfum.
Reynsla af markaðssetningu og herferðum.
Reynsla af CRM/sölupípulínu og samningsferlum.
Reynsla af tengslaneti, viðburðahaldi eða samfélagsvirkjun.

Af hverju Jónsbók?

Raunveruleg áhrif á stefnu, vöxt og vöru.
Tækifæri til að móta notkun gervigreindar í lögfræði.
Hraðskriðið teymi með viðskiptavini á Íslandi og erlendis.
Möguleiki á þátttöku í uppbyggingu nýrra markaða.
Samkeppnishæf kjör og möguleiki á árangurstengingu.

Allt árið

Kynningar velkomnar

Opin umsókn

Tegund umsóknar

Lögfræði + Sala

Áhersla

Kynntu þig fyrir okkur

Sendu stutta kynningu, ferilskrá eða hlekk á prófíl og dæmi um verkefni á jobs@jonsbok.ai. Segðu okkur hvað vekur áhuga þinn á Jónsbók. Enginn umsóknarfrestur er tilgreindur; við gætum haft samband ef viðeigandi tækifæri opnast.

Sendu okkur tölvupóst