Jónsbók
< Til baka á blogg
Birt þann 14 nóvember 2025Teymi Jónsbókar2 min read

Útrás í sex lögsögum

Útrás í sex lögsögum

Jónsbók er aðgengileg á Íslandi, í Ungverjalandi, Króatíu, Finnlandi, Noregi og Póllandi.

Gagnagrunnur Jónsbókar býr yfir öllu lagasafni ofangreindra ríkja - lögum, reglugerðum, dómum og stjórnvaldsúrskurðum. Jónsbók þekkir uppbyggingu réttarheimilda, innbyrðis tengsl þeirra og þróun yfir tíma. Svör byggjast á frumheimildum og eru studd skýrum tilvísunum.

Vinnið með íslenskar, ungverskar, króatískar, finnskar, norskar og pólskar réttarheimildir í einu verkflæði.

Jónsbók auðveldar undirbúning álitsgerða, stefnu- og varnarskjala, samningsgerðar og fræðilegrar vinnu. Hún sparar tíma við hefðbundna heimildavinnu og veitir traustan upphafspunkt fyrir dýpri og rökstudda lagalega greiningu. Fyrir lögmannsstofur, fyrirtæki, opinbera aðila og fræðasamfélagið felur þetta í sér aukna skilvirkni og betri yfirsýn yfir síbreytilegt lagaumhverfi.

Hafðu samband

Fáðu aðgang að Jónsbók og finndu hvernig hún getur auðveldað lögfræðilega vinnu.

Bóka kynningu