
Frá fyrstu dögum Jónsbókar var ljóst að gervigreind gæti nýst lögfræðingum vel. En innleiðing gervigreindarlausnar fyrir lögfræðinga er ekki einföld. Starfið krefst nefnilega mikillar nákvæmni, innsæis og dómgreindar.
Hingað til hefur of mikill tími lögfræðinga farið í annað en að beita innsæi og dómgreind. Tíminn fer að miklu leyti í handavinnu, tölvupósta og fyrstu drög að einfaldari málum.
Að okkar mati er tími lögfræðinga of dýrmætur til að eyða í slíkt. Þess vegna fórum við af stað með Jónsbók.
Með lausn Jónsbókar er stór hluti af þeim tíma sem fór í að finna viðeigandi réttarheimildir tekinn út. Notendur fá heimildir unnar upp í hendurnar og geta þess í stað einbeitt sér að dýpra mati og stefnumótandi hugsun.
Þetta þýðir þó ekki að þörf fyrir lögfræðinga hverfi. Lögin eru mannanna verk og verða áfram túlkuð og mótuð af lögfræðingum, sem betur fer.
Með tilkomu Jónsbókar vonumst við til að lögfræðingar geti í auknum mæli sleppt hvimleiðri handavinnu og einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli: að sinna verkefnum sínum og skjólstæðingum af heilindum.
Með Jónsbók fá lögfræðingar nýjustu tækni, sérsniðna að sínum þörfum.
Við viljum endilega heyra frá þér og ræða hvernig Jónsbók gæti nýst þér og þínu teymi.
Fáðu aðgang að Jónsbók og finndu hvernig hún getur auðveldað lögfræðilega vinnu.
Bóka kynningu